• Lýsigagnagátt
  •   Search
  •   Map
  •  Sign in

Sjókort á rastaformi

Íslensk sjókort eru gefin út í þremur megin kortaseríum. Hafna- og aðsiglingakort eru 62 talsins, 56 hafnakort og 6 aðsiglingakort. Hafnakort eru í mælikvarða 1:10.000. Aðsiglingakortin eru í mælikvörðum á bilinu 1:35.000 til 1:50.000. Strandsiglingakort í mælikvarða 1:100.000 eru 18 og yfirsiglingakort í mælikvarða 1:300.000 eru 6. Þrjú yfirlitskort eru í mælikvörðum einn á móti milljón og minni.



Skrá yfir sjókort er á vef Landhelgisgæslunnar.´

Sjá hér Kortaskrá hér: https://www.lhg.is/wp-content/uploads/2026/03/Kortaskra_IS_Catalogue_of_Charts_i_gildi.pdf



Sjókortin sem hér eru birt hafa ekki verið leiðrétt samkvæmt tilkynningum til sjófarenda. Undantekning frá því eru sjókort í mælikvarða 1:10000 gefin eru út og prentuð eru á blaðstærð A3. Kortin sem þetta á við eru stjörnumerkt [*] í kortaskránni.



Sjókortin í vefþjónustunni eru rastamyndir af útgefnum sjókortum eins og staðan er í lok nóvember 2023.



Listi yfir sjókort sem eru í gildi og tilkynningar til sjófarenda er að finna á vef Landhelgisgæslunnar:

https://www.lhg.is/wp-content/uploads/2026/01/Listi-yfir-Tts-med-efni-tilkynningar_IS-EN-1.pdf



Rammi og bauganet tekið burt:

Við gerð rastamyndanna var rammi sjókorts fjarlægður, textaupplýsingar í ramma utan kortflatar og bauganet á kortfleti. Þá voru textaupplýsingar inn á kortfletinum teknar í burtu þar sem að þær voru óþarfar samhengisins vegna.



Tákn og skammstafanir á sjókortum eru samræmd á alþjóðavísu (INT1). Tákn og skammstafanir í íslenskum sjókortum eru skýrð í samnefndu riti. Það er aðgengilegt á vef Landhelgisgæslunnar.



Dýpi er miðað við meðalstórstraumsfjöru. Dýpi og hæðir eru í metrum. Dýpi að 21 metra er gefið í metrum og desímetrum. Frá 21 til 31 er dýpið á hálfum metra. Frá 32 m er dýpi í heilum metrum.



Hægt er að skoða kortin í Kortaglugga og einfaldast að finna þau þar með því að setja hugtakið „sjókort“ í leitargluggann. Sjá hér: https://kort.gis.is/mapview/?app=kort

Simple

Date (Creation)
2019-09-13
Citation identifier
https://gatt.lmi.is/geonetwork/srv/metadata/76e02e09-db0c-4eac-a8b6-5436fa5bd5a9
Presentation form
Digital image
Purpose

Skoðunaraðgangur að sjókortum í gegnum vefsjá er hugsaður sem þjónusta við almenning og samfélag.

Á skipstjórnarmönnum hvílir sú skylda eftir sem áður að hafa prentuð sjókort um borð í skipum sínum samkvæmt 10. gr. 5. mgr. reglna um björgunar- og öryggisbúnað íslenskra skipa (nr. 189/1994).



Þar segir: „Sérhvert skip skal hafa nýjustu útgáfu nauðsynlegra sjókorta, þ.e. yfirsiglinga- og sérkort. Nauðsynleg tæki skulu vera til að setja út í sjókort svo og vitaskrár, flóðtöflur og nauðsynlegar leiðsögubækur fyrir þau svæði sem fyrirhugað er að sigla um. Leiðréttingar, sem fram koma eftir útgáfu korts og birtar eru í tilkynningum til sjófarenda skulu færðar í kortin. Aðrar leiðréttingar sem birtar eru skal heimfæra þar sem við á.“



Í viðauka reglugerðar um öryggi fiskiskipa sem eru 15 metrar eða lengri að mestu lengd, viðauki 1, X. kafli, 4. regla (122/2004) segir:



Siglingaáhöld og sjóferðagögn.



1. Um borð í skipum:

a. skulu vera hentug siglingaáhöld, sjókort og sjóferðagögn til að skipuleggja og sýna leið skipsins vegna fyrirhugaðrar ferðar og setja út og fylgjast með stöðum skipsins meðan á ferð þess stendur. Fallast má á að rafræn korta- og upplýsingakerfi (ECDIS) uppfylli kröfur í þessum undirlið um að sjókort skuli vera til staðar;



b. skal vera varabúnaður sem uppfyllir kröfurnar í lið .1 um virkni ef þessu hlutverki er fullnægt að hluta til eða að fullu með raftæknilegum búnaði.



2. Sjókort og sjóferðagögn, svo sem siglingaleiðbeiningar, vitaskrár, tilkynningar til sjófarenda, flóðatöflur og öll önnur nauðsynleg sjóferðagögn vegna fyrirhugaðrar ferðar skulu vera af nægilegum fjölda og leiðrétt.

Credit

Landhelgisgæsla Íslands

Point of contact
Organisation name Individual name Electronic mail address Role

Landhelgisgæsla Íslands

sjokort@lhg.is

Owner

Landhelgisgæsla Íslands

Sjómælinga- og siglingaöryggisdeild

arni@lhg.is

Point of contact
Keywords
  • GSL

User contact info
Organisation name Individual name Electronic mail address Role

Landhelgisgæslan

sjokort@lhg.is

Use limitation

Notist ekki til siglinga - No to be used for navigation

Language
ice
Topic category
  • Oceans
N
S
E
W
thumbnail




Reference system identifier
WGS84
Distribution format
Name Version

PNG

Digital transfer options

OnLine resource
Protocol Linkage Name

WWW:LINK-1.0-http--link

https://www.lhg.is/wp-content/uploads/2026/03/Kortaskra_IS_Catalogue_of_Charts_i_gildi.pdf

Kortaskrá

WWW:LINK-1.0-http--link

https://www.lhg.is/wp-content/uploads/2026/01/Listi-yfir-Tts-med-efni-tilkynningar_IS-EN-1.pdf

Listi yfir tilkynningar til sjófarenda

OGC:WMTS

Sjomaelingar:Sjokort_Sjomaelinga

OGC:WMTS

Sjomaelingar:sjokort_10thusund

OGC:WMTS

Sjomaelingar:sjokort_15thusund

OGC:WMTS

Sjomaelingar:sjokort_35_40_50thusund

OGC:WMTS

Sjomaelingar:sjokort_300thusund

OGC:WMTS

Sjomaelingar:sjokort_1milljon

OGC:WMS

https://gis.lmi.is/mapcache/sjokort/wms

Sjomaelingar:Sjokort_Sjomaelinga

WWW:LINK-1.0-http--link

https://kort.gis.is/mapview/?app=kort&l=is&c=-2187671,9569502&z=1.6&ls=14146,13790&op=14146_1&eg=14732,13782,14676

Kortagluggi

Metadata

File identifier
76e02e09-db0c-4eac-a8b6-5436fa5bd5a9 XML
Metadata language
ice
Character set
UTF8
Date stamp
2026-06-25T12:01:21
Metadata standard name

ISO 19115:2003/19139

Metadata standard version

1.0

Metadata author
Organisation name Individual name Electronic mail address Role

Landhelgisgæsla Íslands

sjokort@lhg.is

Owner

Landhelgisgæsla Íslands

Sjómælinga- og siglingaöryggisdeild

arni@lhg.is

Author
 
 

Overviews

overview
Strandsiglingakort - Smámynd
overview
Aðsiglinga- og hafnarkort - smámynd
overview
Yfirsiglingakort - smámynd

Spatial extent

thumbnail

Keywords

GSL


Provided by

logo
Access to the catalogue
Read here the full details and access to the data.




  •   About
  •   Github
  •